Saunatjald
Löv Premium
Löv Premium
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Byggt fyrir frelsi, afhent sem heildstæður pakki. Færanlegt saunasett með vandlega völdum aukahlutum sem gera þér kleift að skapa alvöru saunaupplifun – á einfaldan og þægilegan hátt, hvar sem er.
Saunatjald hannað fyrir íslenskar aðstæður og ævintýri – hvort sem það er í jeppaferðina, sleðaferðina, útileguna, veiðitúrinn, fjallgönguna, kajakferðina eða með í bústaðinn.
Þetta er saunan sem þú pakkar saman og tekur með þér hvert sem ferðinni er heitið. Tjaldið er auðvelt að setja upp fyrir tvo einstaklinga og jafn fljótlegt að taka niður aftur.
Nýr og nettur saunaofn með útdraganlegum skorsteinsrörum, sérstaklega hannaður fyrir stærð tjaldsins, hitar tjaldið upp í 80°C á 15–20 mínútum – hvort sem þú ert við vatnið, uppi á fjalli, í snjónum eða á tjaldsvæðinu.
Saunaofninn kemur í bakpoka sem auðvelt er að festa tjaldtöskuna á. Þannig getur einn einstaklingur borið alla saununa á bakinu og tekið hana með í alvöru íslensk ævintýri.
Prófað af TÜV SÜD – einni virtustu vottunarstofu Evrópu.
Sveigjanleg sauna sem krefst ekki byggingarleyfis, passar í skottið á bílnum og skilar samt sömu áhrifum og föst sauna.
- Sett upp á 10 mínútum
- Mælt er með að tveir setji hana upp
- Hitnar yfir 80°C
- Færanleg – passar í bílinn
- Frábær í jeppaferðir, sleðaferðir, útilegur og fjallgöngur
- 2 ára ábyrgð
- Engin þörf á byggingarleyfi
Með saununni fylgir eftirfarandi:
- Saunatjald með tösku
- Saunaofn með bakpoka
- 2 álstangir fyrir tjaldið
- Hælar og stormlínur
- Laus gólfdúkur með eldvarnarmottu – hægt er að fjarlægja hvort um sig sérstaklega
- Eldvarnarmotta undir saunaofn
- 2 einnar hæðar bekkir úr cedar
- Fata og ausa
- Samanbrjótanleg steinakarfa
- Hitaþolnir hanskar
- 20 kg saunasteinar
- Saunahúfa úr 100% ull – 2 stk.
- Hitamælir
Share
