Viltu leigja saunatjald?
Við leigjum út Näver, Björk og Löv saunatjöld – tilvalin fyrir hópinn, viðburðinn, ferðalagið, veiðiferðina eða bara heima í garðinum. Tjöldin koma í handhægum töskum og ítarlegar leiðbeiningar fylgja. Verðskrá og bókun eru hér fyrir neðan. Við getum líka komið með tjaldið, sett það upp og kynt fyrir viðburðinn þinn.
Leiga
Verðskrá
Við leigjum út Premium-pakkana okkar – tjald, ofn, bekki og allt sem þarf til að kveikja upp.
| Näver / Löv | Björk | |
|---|---|---|
| Dagur (mán–fim) | 15.000 kr. | 20.000 kr. |
| Dagur (fös–lau) | 20.000 kr. | 30.000 kr. |
| Helgarleiga (fös–sun) | 30.000 kr. | 40.000 kr. |
| Vikuleiga (mán–fim) | 30.000 kr. | 40.000 kr. |
| Vika (mán–sun) | 40.000 kr. | 50.000 kr. |
Kaldur pottur: 10.000 kr. á dag.
Näver hentar 4–6 manns, Björk 6–10 manns og Löv 2–4 manns. Sjá pakkana.
Leigan dregst frá kaupverðinu
Ef þú ákveður að kaupa saunatjald innan 30 daga frá leigunni dregst öll leiguupphæðin frá kaupverðinu. Hafðu samband á saunatjald@saunatjald.is eða í síma 865-3639 og við sendum þér afsláttarkóða.
Gjafabréf
Helgi í saunu er frábær gjöf. Kauptu gjafabréf sem gildir upp í leigu eða kaup.
Svona bókar þú
- Sendu okkur dagsetningu og hvaða tjald þú vilt á saunatjald@saunatjald.is eða hringdu í 865-3639.
- Tjaldið er sótt á Hraunhellu 3, Selfossi.
- Íslenskar leiðbeiningar fylgja – uppsetning tekur um 10 mínútur. Lestu leiðbeiningarnar fyrir fram.
Viltu að við komum með tjaldið, setjum það upp og kyndum fyrir viðburðinn? Hafðu samband og við gerum tilboð.