Hér má finna flestar upplýsingar um saununa og algengar spurningar

Uppsetning

Uppsetning á tjaldinu ætti að vera á allra færi. Bast hefur tekið saman myndbönd með leiðbeiningum á öllum sínum tjöldum og aukahlutum og má nálgast þær á YouTube með því að ýta á hnappinn hér fyrir neðan. Hér fyrir neðan eru svo hlekkir á algengustu myndböndin.

Leiðbeiningar

Algengar spurningar

Pakkarnir eru Basic, Plus, Premium og Deluxe. Basic: tjald, Malm-ofn, reykháfur, gólf og eldvarnarmotta. Plus bætir við steinakörfu, hanskum, steinum, hitamæli, fötu og ausu. Premium bætir við bekkjum, saunahúfum og veðurhlíf. Deluxe bætir við gufugjafa, málmgólfi, viðarmottu og fleiru. Nánar á samanburðarsíðunni.

Tjaldið sjálft rís á örfáum mínútum með því að toga út hliðarnar. Svo er það fest með hælum og stormlínum, ofninn borinn inn og reykháfurinn settur saman. Alls má gera ráð fyrir um 10 mínútum í uppsetningu. Upphitun tekur svo um 20 mínútur í Näver og um 25 mínútur í Björk með Malm-ofninum.

Já, tjaldið er hannað til að þola íslenskt veður allt árið um kring. Við mælum þó með því að taka þau niður í miklum vindi eða óveðri.

Það fer eftir því hvaða tjald er valið:
Löv: 2–4 manns
Näver: 4–6 manns
Björk: 6–10 manns
Stam: 16–20 manns (sérpöntun)

Nei, tjaldið þarf ekki rafmagn og er fullkomlega sjálfstætt.

Hitastiginu er stjórnað með nokkrum einföldum þáttum: magni og gerð eldiviðs í ofninum, loftstýringum ofnsins, loftræstingu tjaldsins og með því að hella vatni á steinana til að auka raka. Með þessu má stilla bæði hita og rakastig eftir smekk.

Nei, ekki ef rétt er staðið að notkun og frágangi. Með því að loftræsta tjaldið vel eftir notkun og leyfa því að þorna dregur það úr raka og ólykt og efnið helst í góðu ástandi til lengri tíma.

Eftir að eldurinn er slökktur tekur yfirleitt um 20–25 mínútur fyrir ofninn að kólna það mikið að öruggt sé að pakka honum saman. Hægt er að flýta ferlinu þegar glóð hefur dáið út með því að hella vatni á ofninn.

Já, saunatjöldin eru hönnuð með meðfæranleika í huga. Þau eru einföld í niðurpökkun og fylgihlutir eru geymdir í töskum sem passa í farangursrými venjulegra bíla.

Veðurvörnin verndar saunatjaldið gegn rigningu, raka og UV-geislun. Hún stuðlar að lengri líftíma efnisins og er sérstaklega gagnleg þegar tjaldið stendur uppi yfir lengri tíma.

Fyrir minna tjaldið dugar yfirleitt flötur sem er um 2,5 × 2,5 metrar, en stærra tjaldið krefst stærra svæðis, allt að 3,2 × 3,2 metrum. Mikilvægt er að undirlagið sé stöðugt og slétt.

Hæð:

Björk: 210 cm

Näver: 190 cm

Já auðvitað. Þá er sérstaklega mikilvægt að tryggja góða festingu þar sem ekki er hægt að nota hefðbundna tjaldhæla.

Best er að nota þurran við, helst harðvið eins og birki. Þurr eldiviður tryggir betri bruna, stöðugri hita og skilvirkari upphitun.

Já, efnin eru prófuð og uppfylla alþjóðlega öryggisstaðla varðandi eldvarnir og heilsuvernd. Þetta tryggir að notkunin sé örugg, að því gefnu að leiðbeiningum sé fylgt.

Allar vörurnar okkar eru hannaðar til að vera færanlegar og auðveldar í pökkun. Hér eru þyngdirnar:

Näver (í tösku)

  • Þyngd: 20 kg
  • Mál: 150 x 40 x 30 cm

Björk (í tösku)

  • Þyngd: 25 kg
  • Mál: 180 x 45 x 35 cm

Ofn (Malm)

  • Þyngd: 23 kg (24 kg með reykháf)
  • Pakkast í eigin tösku ásamt fótum og reykháfspípum

Passar þetta í bíl?

Já, allt kemst fyrir í venjulegu farangursrými með aftursæti lagt niður.

Já. Þú getur sótt það á Hraunhellu 3 á Selfossi eða fengið það sent með Póstinum.

Nýju pakkarnir með Malm-ofninum eru pantaðir frá Bast. Þú forpantar á netinu og við afgreiðum þá þegar þeir koma til okkar. Pakkarnir koma 14. nóvember.

Já, hægt er að dreifa greiðslum með Netgíró. Þú velur Netgíró í greiðsluferlinu.